
Á einu bretti
Áætlun
Aldur: 4. bekuur
Tími: Um 2 x 60 mínútur
Viðfangsefni: Myndverk frá hugmynd til afurðar
Markmið
Nemendur eiga í þessu verkefni að geta skapað myndverk byggt á eigin hugmyndum. Nemendur eiga að geta unnið út frá kveikju við listsköpunina en líka útskýrt og rætt vinnuferli frá hugmynd að myndverki. Brýnt er fyrir nemendum að þeir geri sér grein fyrir verðmæti efna og áhalda sem notast er við og gangi frá þeim á sómasamlegan hátt.
Efni, áhöld, hjálpargögn
EInhvers konar tréplatti
Sandpappír
Veggfóðurslím
Gamlar bækur eða blöð
Skissublöð
Blýantur
Þekjumálning
Pensill
Band og jafnvel skrúfa
til að hengja upp
tréplattann en einnig
má bora holu í plattann aftanverðan
fyrir nagla í vegg.
2010 - present
2010 - present
Framkvæmd
Nemendur fá einhvers konar bretti eða tréplatta í hendur, í þessu verkefni er er tilvalið að nýta eitthvað tilfallandi, það sem til er hverju sinni. Þetta getur verið afskurður frá trésmíðaverkstæðum eða aðrir slíkir afgangar, mögulega frá smíðastofu.
Fyrst þarf mögulega að pússa aðeins til hvöss horn og grófa bletti. Því næst er notast við gamlar bækur sem óhætt er að farga og fá má á nytjamörkuðum. Nemendur velja sér nokkrar blaðsíður og rífa þær úr. Ekki er vitlaust að leyfa nemendum að rýna í textann með það fyrir augum nýta sér hann við myndsköpun síðar í verkefninu. Nemendur fá því næst blöndu af veggfóðurslími og líma textablöðin á tréplattann. Þetta þarf að gera vandlega og gæta þess vel að engar loftbólur myndist undir textanum.
Næst er þessu leyft að þorna en það getur tekið tíma ef plattinn er mjög blautur. Þá getur verið að ekki verði hægt að vinna meira með hann fyrr en í næsta tíma hjá sömu nemendum. En nemendur geta strax tekið að skissa upp hugmyndir að myndverki með hliðsjón af textanum sem þeir völdu sér.
Ekki er ætlast til að myndin þeki allan textann þvi hann á verða hluti af myndinni. Þetta þýðir að nemendur þurfa að átta sig á þessu og velja mögulega einn hlut til að mála og túlka með textann á plattanum líkt og sjá má á myndinni hér að ofan.
Sniðugt getur verið að vera búinn að bora litla holu aftan í plattann fyrir miðjum efri enda til þess að geta svo hengt myndina upp á nagla í vegg. Ef það er ekki hægt má festa band aftan á plattann í sama skyni, til dæmis með nettri skrúfu.
Heimildir: