top of page
​Áætlun

Aldur: 4. bekkur

Tími: Um 2 x 60 mínútur

Viðfangsefni: Mismunandi efnisval

Markmið

Nemendur eiga að geta nýtt sér grunnþætti myndlistar við eigin sköpun og unnið hugmynd frá skissu að bæði tvívíðu og þrívíðu lokaverki. Einnig eiga þeir að geta beitt hugtökum og heitum sem tengjast aðferðum við þá sköpun.

Efni, áhöld, hjálpargögn

Þykkur pappi,
um 10 sm x 10 sm

Steinn,
hæfilegur á pappann

Akrýlmálning

Pensill

Dúskar
í öllum litum og gerðum

Hreyfanleg
augu

Fjaðrir

Borðar og slaufur
ýmiss konar

Pappi fyrir lappir

Svartur penni
með varanlegu bleki

2010 - present
2010 - present
Framkvæmd

Það er oft hægt að búa til flottar heimatilbúnar tækifærisgjafir úr einföldum efniviði með litlum tilkostnaði. Sumir skólar njóta þess að fjara liggur nánast við skólalóðina og þar má skreppa út í fjöru til að tína steina af öllum stærðum og gerðum. Í þetta verkefni þarf fyrst að velja hæfilega stóran stein. Nemendur þrífa steininn og þurrka og svo má mála hann með akrýlmálningu í litum að eigin vali, breyta honum með því í persónu að eigin vali. Dæmið hér að ofan er sótt á erlenda síðu og textann eða orðaleikinn sem þar sést þyrfti að laga að íslenskri tungu. Til dæmis með þvi að skrifa Augasteinninn minn! eða einhvern annan ámóta texta.

Oft er skemmtilegt að eiga til svona nota efnivið sem er spennandi að móta og nemendur komast ekki oft í tæri við. Fjaðrir, slaufur, borðar, tilbúin augu sem hreyfast og dúskar ýmiss konar eru ágæt dæmi um þetta.

Nemendur mála steininn, eins og fyrr segir, og þekja líka með málningu ferhyrndan og þykkan pappa í undirstöðu. Nemendur útbúa líka og mála litla fætur úr pappa til að festa undir steininn og á pappann. Því næst mega nemendur útbúa, eins og þeim finnst fara best, hluti á borð við hatt, fatnað, augu, nef, munn og hendur úr þeim efniviði sem kann að vera til. Nota má penna með bleki sem ekki næst af til að teikna það sem þarf á steininn og skrifa texta eða skilaboð á undirstöðuna.

                              

                                           Steinálfur

 

 

© 2023 Artist Corner. Vefur settur upp af höfundi á wix.com.

bottom of page